Hydrate Original Coco á hraunhellu í íslenskri haustlyngbreiðu með jökulá og snæviþakta tinda í baksýn

Frískandi kókosvatn með náttúrulegum steinefnum

Veldu aðra leið

Frískandi kókosvatn með náttúrulegum steinefnum, án viðbætts sykurs og óþarfa aukaefna. Nú þegar í hillum á Íslandi og við leitum að fleiri öflugum söluaðilum.

Vörurnar

Þrjár bragðtegundir

330 ml dósir, 24 í kassa. Alvöru hráefni úr ungum og grænum kókoshnetum, kolsýrt og fullkomið kalt. Blandaðir kassar í boði fyrir söluaðila.

Hydrate True Mango á blautu hrauni í rauðri haustlyngbreiðu á Íslandi
True Mango

Ferskur mangó

Alvöru bragð úr kreistu mangói. Engin gerviefni, bara sól í dós.

24 kkal í 100 ml

Hydrate Original Coco á mosavöxnu hrauni við jökulá að hausti
Original Coco

Hrein kókoshneta

Þar sem þetta byrjaði. Hreint kókosvatn með frískandi límónutvisti.

24 kkal í 100 ml

Hydrate Real Ginger í gylltu haustljósi á hálendinu
Real Ginger

Kraftmikill engifer

Kraftmikill engifer í jafnvægi við límónusafann. Rífur aðeins í.

24 kkal í 100 ml

Nú þegar í hillum

Hydrate fæst hjá

NettóKrónanPrísFjarðarkaupMelabúðinSparKjörbúðirnarKrambúðirnarOrkanSeiðkarlinn

... og fleiri eru að bætast við. Þín verslun næst? Sæktu um hér.

Af hverju Hydrate?

Alvöru vökvun, engar málamiðlanir

Kalíum, magnesíum og natríum úr kókosvatni og sjávarsalti. Engin gervisætuefni, engin rotvarnarefni, enginn viðbættur sykur.

0 mg

Steinefni

í hverri dós fyrir hámarks vökvun

0 %

Kókosvatn

úr bestu grænu kókoshnetunum frá Víetnam

0

Viðbættur sykur

og núll gervisætuefni. Engar styttri leiðir

0 kkal

Í 100 ml

léttur drykkur fyrir líkama á hreyfingu

Haustganga á íslensku hálendi með Hydrate

Sagan

Á uppruna sinn úr hafinu

Hydrate rekur uppruna sinn til hafsins. Johan, upphafsmaður vörunnar og fríkafari, treysti á kókosvatn eftir langa daga í sjónum. En flest sem markaðurinn bauð upp á var flatt, of sætt eða fullt af aukaefnum. Hann vildi eitthvað betra.

„Frá fyrsta degi vissi ég að ég vildi búa til hreina gæðavöru sem ég gæti staðið stoltur á bak við.“Johan, stofnandi Hydrate

Hydrate kemur frá sænsku fyrirtæki en er framleitt úr grænum kókoshnetum frá Ben Tre héraði í Víetnam. Kókoshneturnar eru tíndar snemma þegar vatnið er sem ferskast og ríkast af steinefnum.

Hydrate dósirnar þrjár á hraunhellu með haustlitað hálendi og jökulá í baksýn
Hydrate á Íslandi 64°N

Ísland

Markaður sem er tilbúinn

Sundlaugar, heitir pottar, sánur, köld böð, fjallgöngur og ræktin. Hvergi passar náttúruleg vökvun betur inn í daglegt líf. Ísland er meðal fyrstu landa í Evrópu sem býður upp á Hydrate.

Eftir sundið

Náttúruleg steinefni eftir pottinn, sánuna eða kalda karið. Hydrate er hannað með betri endurheimt í huga.

Eftir æfinguna

Kalíum og magnesíum fyrir vöðvana, án sykurs og gerviefna sem fylgja hefðbundnum íþróttadrykkjum.

Í hillunni þinni

Functional drykkir er sá vöruflokkur sem vex hraðast í Evrópu. Vertu á undan með vöru sem selur sig sjálf.

Fyrir söluaðila

Við byggjum þetta saman

Verslanir, kaffihús, líkamsræktarstöðvar, sundlaugar, hótel og netverslanir. Við leitum að metnaðarfullum samstarfsaðilum um allt land.

Vara í örum vexti

Kókosvatn og functional drykkir vaxa hratt í allri Evrópu. Vertu á undan.

Heilbrigð framlegð

Premium vara með verðlagningu sem virkar fyrir alla. Skýr innkaupsverð, engin falin gjöld.

Markaðsefni fylgir

Ljósmyndir, POS efni og samfélagsmiðlaefni, tilbúið á íslensku fyrir þína miðla.

Sveigjanlegar pantanir

Byrjaðu með einn blandaðan bakka og stækkaðu í takt við söluna. Við vöxum með þér.

Örugg dreifing

Skilvirk afhending um allt land og fyrirsjáanlegt birgðahald fyrir þinn rekstur.

Persónulegur stuðningur

Beint samband við okkur, engin þjónustuver. Við svörum hratt og fylgjum þér eftir.

Umsókn

Gerast söluaðili

Fylltu út eyðublaðið og við höfum samband innan skamms.

Með því að senda umsókn samþykkir þú að við höfum samband vegna hennar. Engin skuldbinding.

Takk fyrir umsóknina! Póstforritið þitt opnaðist með umsókninni. Ef ekkert gerðist geturðu sent okkur beint á heildraent@gmail.com.

Spurt og svarað

Algengar spurningar

Hydrate inniheldur náttúruleg steinefni úr kókosvatni auk viðbætts magnesíums og sjávarsalts. Ólíkt flestum íþróttadrykkjum er ekkert gervisætuefni, engin litarefni, engin rotvarnarefni og enginn viðbættur sykur.

Steinefni stjórna vökvajafnvægi, vöðvastarfsemi og taugaboðum líkamans. Kalíum styður hjarta- og vöðvaendurheimt, magnesíum orkuframleiðslu og slökun vöðva á meðan natríum tryggir rétta vökvun, sérstaklega eftir áreynslu.

Alla. Hydrate er vegan, glútenlaust og án óþarfa aukaefna. Drykkurinn er öruggur fyrir börn, barnshafandi konur og íþróttafólk. Hann er vinsælastur eftir æfingu eða sánuna, sem pick-me-up drykkur yfir miðjan daginn og bara hvenær sem er.

330 ml dósir, 24 í kassa. Hægt er að panta staka bragðtegund eða blandaðan kassa með öllum þremur bragðtegundunum. Verðskrá fyrir söluaðila fylgir svari við umsókn.

Fylltu út umsóknareyðublaðið hér að ofan. Við svörum innan skamms. Engin skuldbinding fylgir umsókn.